Um okkur

Fjölskyldufyrirtæki í garðyrkju

Fagurker er lítið fyrirtæki sem garðyrkjufræðingurinn Svavar Skúli stendur fyrir. Hann hefur unnið við garðyrkju í 15 ár.

Svavar Skúli klippir hátt limgerði með stangarklippum í gróskumiklum garði
Hugmyndin

Fallegt allt árið, ekki bara á sumrin

Flestar lóðir og blómaker fá athygli á vorin og svo ekki aftur fyrr en næsta vor. Inngangur fyrirtækis og garðurinn heima eru samt í notkun allt árið.

Þess vegna skipuleggjum við umhirðuna eftir árstíðum. Á vorin er hreinsað og klippt, á sumrin er slegið og sumarblóm sett í kerin, á haustin er gengið frá og á veturna fá kerin gróður sem þolir kuldann.

Vinnulag

Svona vinnum við

Allt árið

Við hugsum um gróðurinn í janúar líka. Ker og lóðir fá umhirðu sem passar árstíðinni.

Beint samband

Fagurker er lítið fyrirtæki. Þú veist alltaf við hvern þú ert að tala.

Fagþekking

Garðyrkjufræðingur með 15 ára reynslu velur plönturnar og skipuleggur verkin.

Fyrirtæki og heimili

Við sinnum stórum lóðum og litlum görðum af sömu natni.

Garðyrkjumaður bendir á grein á reynitré og barn horfir upp
Garðyrkjufræðingur

Svavar Skúli

Svavar Skúli er garðyrkjufræðingur og hefur unnið við fagið í 15 ár. Hann þekkir hvaða plöntur standa sig í íslensku veðri og hvaða plöntur gera það ekki.

Fagurker er lítið fyrirtæki og þú ert í beinu sambandi við hann frá fyrsta tölvupósti.

Scroll to Top