Þjónusta

Við sjáum um lóðina við sumarhúsið

Sumarhúsið á að vera staður til að slaka á. Við sjáum um gróðurinn og lóðina svo þú getir notið sumarsins. Við vinnum á Suðurlandi og þekkjum vindinn þar vel.

Raðir af lerkitrjám í haustlitum með grasstíg á milli

01

Skjólbelti og trjágróður

Gott skjól breytir miklu í sveitinni. Við veljum harðgerðar plöntur sem þola íslenskan vind og veður og gróðursetjum þær þar sem þær gera mest gagn.

Skipulag skjólbelta
Harðgerðar tegundir eins og víðir, birki og greni
Gróðursetning og frágangur
Ráð um umhirðu fyrstu árin
Sumarhús með palli umkringt trjám og grænni grasflöt

02

Árleg umhirða

Við komum í árlega heimsókn, förum yfir lóðina og gerum það sem þarf. Þú nýtur sumarsins á meðan.

Klipping trjáa og runna
Beð hreinsuð
Litið eftir skjólbeltum og ungum plöntum
Hélað gras í sólskini við birkiskóg

03

Hreinsað að vori, gengið frá að hausti

Á vorin gerum við garðinn tilbúinn fyrir sumarið. Á haustin göngum við frá svo hann komi vel undan vetri.

Vorhreinsun og klipping
Beð og grasflöt gerð klár fyrir sumarið
Gengið frá gróðri fyrir veturinn
Lauf og greinar fjarlægð
Útsýni af palli sumarhúss yfir grasflöt og tré

04

Pallar og stígar

Pallur í sólinni og góður stígur að húsinu. Við gerum palla, leggjum stíga og göngum frá gróðrinum í kring svo allt falli vel að landinu.

Pallar við húsið
Hellulagðir stígar og stiklur
Malarstígar
Þökur og frágangur í kring
Ferlið

Svona gengur þetta fyrir sig

1

Þú sendir okkur línu

Sendu okkur tölvupóst eða fylltu út formið og segðu frá verkinu.

2

Við komum og skoðum

Við kíkjum á lóðina eða garðinn og ræðum hvað þú vilt.

3

Þú færð tilboð og verkáætlun

Þú færð tilboð í verkið og verkáætlun.

Er komið að sumarhúsinu?

Segðu okkur frá lóðinni og hvað þú hefur í huga. Við komum, skoðum og gerum þér tilboð.

Scroll to Top