Fagurker fyrir fyrirtæki

Frágangur lóða og skjólbelti

Fiskeldisstöðvar, gagnaver og önnur stór atvinnusvæði standa oft á berangri, við sjóinn eða í hrauninu. Við veljum gróður sem þolir salt, vind og íslenskt veður og sjáum um að gróðurinn veiti skjól og lóðin líti vel út allt árið.

Nýgróðursett limgerði í röð milli tveggja fjölbýlishúsalóða

01

Skjólbelti

Skjólbelti draga úr vindi á lóðinni og gera hana betri stað fyrir starfsfólk og gesti. Við skipuleggjum beltin út frá vindáttum og veljum tegundir sem þrífast á staðnum.

Skipulag skjólbelta út frá vindáttum
Harðgerðar tegundir sem þola vind og frost
Gróðursetning og frágangur
Ráð um umhirðu fyrstu árin
Stórt reynitré og hátt skrautgras undir bláum himni

02

Gróður sem þolir salt og vind

Við sjóinn þarf gróður sem þolir saltúða og sterka vinda. Svavar Skúli, garðyrkjufræðingur með 15 ára reynslu, þekkir tegundirnar sem standa sig við slíkar aðstæður og setur saman gróður sem heldur sér ár eftir ár.

Plöntuval fyrir strandsvæði og berangur
Tegundir sem þola salt og vind
Íslenskar tegundir þar sem þær henta
Löng beð í nýunninni mold með greniskógi í kring

03

Minna ryk á lóðinni

Opin svæði með möl og sandi geta valdið ryki sem berst inn í hús og á búnað. Gróður og þekja á réttum stöðum binda jarðveginn og draga úr foki.

Gróðurþekja á opnum svæðum
Þökur og sáning
Skjólbelti sem draga úr foki
Frágangur á jöðrum lóðar
Blómabeð með bláum kornblómum, hvítum blómum og silfurkambi á bifreiðastæði fyrirtækis

04

Umhirða stórra lóða

Við sjáum um lóðina eftir árstíðum svo hún líti vel út allt árið. Þú ert í beinu sambandi við okkur og við skipuleggjum vinnuna í kringum starfsemina.

Sláttur og kantskurður
Klipping trjáa og runna
Frágangur lóða með verktökum við nýbyggingar
Vorhreinsun og haustfrágangur
Ferlið

Svona gengur þetta fyrir sig

1

Þú sendir okkur línu

Sendu okkur tölvupóst eða fylltu út formið og segðu frá verkinu.

2

Við komum og skoðum

Við kíkjum á lóðina eða garðinn og ræðum hvað þú vilt.

3

Þú færð tilboð og verkáætlun

Þú færð tilboð í verkið og verkáætlun.

Ertu með atvinnusvæði sem þarf skjól?

Segðu okkur frá lóðinni og starfseminni. Við komum, skoðum aðstæður og gerum þér tilboð.

Scroll to Top