Við erum lítið fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað í kringum þá hugmynd að blómaker geti verið falleg allt árið um kring, ekki bara á sumrin. Svavar Skúli, garðyrkjufræðingur, býr að 14 ára fjölbreyttri reynslu af garðyrkjustörfum og tekur að sér hvers kyns verkefni í einkagörðum sem og á fyrirtækjalóðum. Við erum spennt fyrir því að aðstoða þig og tryggja að þín grænu svæði skarti sínu fegursta hvern einasta dag ársins.